Kynnum nýjan Suzuki Across, sportlegan jeppa með Plug-in Hybrid kerfi og E-Four rafrænu fjórhjóladrifi. Helstu útlitseinkenni Across eru skarpar línur og sportlegur framendi með opnu grilli. Að innan er Across hannaður til að vekja tilfinningu um þægindi, lúxus og akstursánægju. Mikið er lagt í hágæða efnisval í innréttingu ásamt mjúkum fyllingum í mælaborði og hurdaspjöldum. Að innan er nægt pláss fyrir ökumann og farþega og farangursrýmið er 490 lítrar.
Meðal staðalbúnaðar í Across: 9 tommu margmiðlunarskjár með Bluetooth, Android Audio, Apple CarPlay og bakkmyndavél, upphitanlegt leðurklætt stýri, 7 tommu LCD upplýsingarskjár, LED framljós með sjálfvirkri hæðarstillingu, LED afturljós, sætishitarar að framan og aftan, sjálfvirk aðfelling á útispeglum, rafknúin afturhleri með hreyfiskynjara, og 19 tommu álfelgur.
Across er meðal öruggustu bíla á markaðnum, öryggisbúnaður m.a. árekstrarviðvaranir með sjálfvirkri neyðarhemlun, skynvæddur hraðafestir (Cruise Control), stillanlegur hámarkshraði, blindblettavari, línuvörn, umferðaskiltalesari, bakkvörn og eCall neyðartilkynningarkerfi.
Kjarni Plug-in Hybrid kerfisins er öflugur rafmótor að framan sem skilar miklu togi á lágum hraða og öflugri 2,5 lítra bensínvél fyrir enn öflugri hröðun á meiri hraða. Rafmótorinn skilar 134kW og 270Nm togi, og fær orkuna úr 18.1kWh hágæða lithium ion rafhlöðu sem staðsett er undir gólfi bílsins. Að aftan er 40kW rafmótor sem knýr áfram E-Four fjórhjóladrifið og dreifir toginu á milli fram og afturhjóla. Hámarksafl frá tveim rafmótorum og bensínvélinni eru 306 hestöfl. Plug-in Hybrid kerfið er útbúið með mismunandi stillingum: EV stillingu þar sem eingöngu er ekið á rafmagni, EV/HV stillingu, ekið á rafmagni og bensín mótorinn kemur inn eftir þörfum, HV stillingu þar sem bensínvélin styður við hleðslu inná rafhlöðuna. Akstursdrægnin á rafmagni er 75 km. Co2 útblástur er aðeins 22g/km og hröðun 0-100 km/klst er 6,0 sekúndur.
Litir
Verð og búnaður
Verð | Across | |
Across Plug-in Hybrid GLX | 9.990.000 kr. | |
Þægindi | ||
9 tommu margmiðlunarskjár með Bluetooth, Android Auto, Apple CarPlay, MirrorLink og bakkmyndavél | x | |
Fjarlægðarskynjarar framan og aftan | x | |
Rafstýrðar rúðuvindur | x | |
Fjarstýrðar samlæsingar | x | |
Lykillaus ræsing | x | |
Lykillaus hurðaopnun | x | |
Sjálfvirk tveggja svæða loftkæling | x | |
Miðstöðvarrist í afturrými | x | |
Stafrænt DAB útvarp | x | |
Sex hátalarar | x | |
Aðgerðarstýri | x | |
Hiti í stýri | x | |
Skynvæddur hraðastillir | x | |
Miðjustokkur með armhvílu | x | |
Mælaborð | Across | |
7 tommu LED skjár | Rafakstursdrægni, hleðslustaða, afldeifing og fl | x |
E-Four upplýsingar | x | |
Þriggja arma stýrishjól | Leðurklætt | x |
Veltistýri með aðdrætti | x | |
Silfurlituð skreyting á mælaborði | x | |
Mælaborðsklæðning | Leðuráferð | x |
Innrétting | Across | |
Glasahaldarar | tveir að framan | x |
tveir að aftan | x | |
Flöskustandar í framhurðum | x | |
Sætaáklæði | Leðuráferð | x |
Framsæti | Rafstýrðar stillingar á bílstjórasæti | x |
Hiti í fram- og aftursætum | x | |
Aftursæti | 60 / 40 skipting | x |
Farangurshilla | x | |
12 volta raftengi | í mælaborði og farangursrými ( 220 volta innstunga í farangursrými ) | x |
Ytri búnaður | Across | |
Þokuljós | Framan | x |
Aftan | x | |
Afturhleri með hreyfiskynjara | x | |
Litaðar hliðarrúður | x | |
Samlitir stuðarar | x | |
Felgur | 19 tommu fimm arma álfelgur | x |
Öryggi | Across | |
Bílastæðavari að framan og aftan | x | |
Sjálfvirk neyðarhemlun | x | |
Blindsvæðaskynjarar | x | |
Línuvörn | x | |
eCal neyðartilkynningarkerfi | x |
Tæknilegar upplýsingar
Vél | 2.5L Plug-in Hybrid | ||
Rúmtak | 2.487 | ||
Drifbúnaður | E-Four | ||
Mál | |||
Lengd (mm) | 4,635 | ||
Breidd (mm) | 1,855 | ||
Hæð (mm) | 1,690 | ||
Hjólahaf | 2,690 | ||
Sporvídd | Framan (mm) | 1,600 | |
Aftan (mm) | 1,630 | ||
Veghæð (mm) | 190 | ||
Beygjuradíus (m) | 5,7 | ||
Rými | |||
Sætafjöldi | 5 | ||
Farangursrými | Hámark | 1,604 (lítrar) | |
Niðurfeld sæti | 1,168 (lítrar) | ||
Upprétt sæti | 490 (lítrar) | ||
Eldsneytistankur | 55 (lítrar) | ||
Vél | |||
Rúmtak cc | 2,487 | ||
Stimplar | 4 | ||
Ventlar | 16 | ||
Borvídd / slaglengd (mm) | 87,5 x 103,4 | ||
Þjöppuhlutfall | 14.0:1 | ||
Hámarksafköst kw/snm | 136/6,000 | ||
Hámarks snúningsvægi m/snm | 227/3,200-3,700 | ||
Hestöfl | 306 | ||
Eldsneytiskerfi | Port innsprautun+bein innsprautun | ||
Gírskipting | E-CVT (sjálfskiptur) | ||
Rafmótor | |||
Framan | Hámarksvægi, kW | 134 | |
Framan | Hámarkstog, Nm | 270 | |
Aftan | Hámarksvægi, kW | 40 | |
Aftan | Hámarkstog, Nm | 121 | |
Undirvagn | |||
Stýri | Tannstangarstýri | ||
Fjöðrun | Framan | MacPherson turnar / gormar | |
Aftan | Fjölliða / gormar | ||
Hemlar | Framan | Loftkældir diskar | |
Aftan | Loftkældir diskar | ||
Hjólbarðar | 235/55R/19 | ||
Þyngdir | |||
Eiginþyngd kg | 1,940 | ||
Heildarþyngd kg | 2,510 | ||
Dráttargeta kg | Hemlaður eftirvagn | 1,500 | |
Afköst | |||
Hámarkshraði | 180 | ||
Hröðun 0-100 km/h sek | 6,0 | ||
Afköst | |||
Rafdrægni | km | 75 | |
Mengunarstaðal | Euro 6d | ||
Co2 útblástur (NECD) | g/km | 26 | |
C02 útblástur (WLTP) | g/km | 22 |